Þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði að trillu sem saknað var út af Akranesi – Trillan fannst í Hafnarfirði

6. maí, 2005

Föstudagur 6. maí 2005.

 

Tilkynningarskyldan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 11:35 og lét vita að trilla hefði dottið út úr sjálfvirku tilkynningarskyldunni skammt vestur af Akranesi.  Ekkert samband náðist við trilluna.  Haft var samband við annan bát sem var nánast á sama stað og síðast var vitað um trilluna en skipstjórinn á þeim bát hafði ekki orðið var við hana.

 

Áhöfn TF-SIF var kölluð út kl. 11:38 og fór þyrlan í loftið kl. 11:57.  Hún leitaði á svæðinu án árangurs.  Skömmu eftir að þyrlan hóf leit hafði Tilkynningarskyldan samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og lét vita að trillan sem saknað var hefði fundist í Hafnarfirði. 

 

Ekki er vitað hvernig stóð á því að trillan sendi upplýsingar um staðsetningu út af Akranesi.

 

Dagmar Sigurðardóttir

fjölmiðlaftr.

Fleiri Fréttir