
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 10. maí 2005.
Nýlega æfði áhöfn varðskipsins Týs og áhöfn TF-LIF viðbrögð við eldsvoða í skipi með c-vakt Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Slökkviliðsmenn voru fluttir með þyrlu út í varðskip og hafði áhöfn varðskipsins undirbúið komu þeirra og fyrirhugað verkefni, m.a. með vatnsöflun og fleira. Síðan æfðu slökkviliðsmenn reykköfun í skipi ásamt reykköfurum varðskipsins.
Að sögn Jörgens Valdimarssonar vaktstjóra c-vaktar SHS gekk æfingin mjög vel og vonast hann til að áframhald verði á sameiginlegum æfingum.
Dagmar Sigurðardóttir fjölmiðlaftr.
