
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 2. júní 2005.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk samband við lögregluna í Ólafsvík í gegnum Neyðarlínuna kl. 15:18 sem tilkynnti að ung kona hefði slasast á skíðum eða snjóbretti á Snæfellsjökli. Óskað var eftir þyrlu í viðbragðsstöðu. Læknir var á leiðinni á slysstað og ætlaði að meta hvort þörf væri á flutningi með þyrlu.
Læknir óskaði síðan eftir þyrlu kl. 16:06 og fór TF-SIF í loftið kl. 16:18. Lenti hún á skíðasvæðinu á Jökulhálsi hálftíma síðar. Þar beið konan í sjúkrabíl og var talið að hún væri handleggsbrotin og e.t.v. með heilahristing.
TF-SIF lenti með konuna innanborðs við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 17:22.
Dagmar Sigurðardóttirupplýsingaftr.