Varðskipið Týr aðstoðaði Fjellmoye

27. júní, 2005

Mánudagur 27. júní 2005.Varðskipið Týr kom norska línubátnum Fjellmoye til aðstoðar um helgina er varðskipið dró bátinn til móts við dráttarbát frá Noregi.  Vélin í Fjellmoye hrundi í orðsins fyllstu merkingu er skipið var statt suðaustur af landinu og kom varðskipið til hjálpar á föstudagskvöldið.  Týr var síðan með Fjellmoye í togi allan laugardaginn og fram yfir miðnætti aðfararnótt sunnudagsins er dráttarbáturinn frá Noregi mætti þeim u.þ.b. 12 sjómílur norðaustur af Færeyjum.


Dagmar Sigurðardóttirupplýsingafulltrú.Fjellmoye í togi. Mynd: Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður á Tý.

Fleiri Fréttir