
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 15. júlí 2005.
Áhöfn TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, aðstoðaði lögregluna á Ísafirði við laxaeftirlit í gær. Flogið var um Hornstrandir og ólöglegra netalagna leitað. Tvö net fundust og voru gerð upptæk ásamt afla, en í þeim reyndust 3 laxar. Áhöfn varðskipsins Óðins kom til aðstoðar þegar netin voru tekin upp.
Meðfylgjandi myndir tók Páll Geirdal, yfirstýrimaður.
Á fyrri myndinni sjást f.v. Sigurður Ásgeirsson, flugstjóri, Pétur Björnsson, lögregluvarðstjóri, Jóhannes Friðrik Ægisson, háseti og Reynir G. Brynjólfsson, flugvirki.

