Fyrsta heimsókn færeysks varðskips til Íslands – Áhöfn Brimils heimsækir Landhelgisgæsluna

4. ágúst, 2005

Fimmtudagur 4. ágúst 2005.


Í gær sigldi færeyska varðskipið Brimil frá Reykjavík eftir að skipherra og áhöfn varðskipsins höfðu heimsótt Landhelgisgæsluna.  Þetta er í fyrsta skipti sem færeyskt varðskip kemur til Íslands.


Meðfylgjandi myndir tók Sveinbjörg Guðmarsdóttir er forstjóri og skipherrar Landhelgisgæslunnar fóru um borð í Brimil og heilsuðu upp á skipherra og áhöfn skipsins og þegar skipið sigldi úr höfn síðdegis í gær.


Dagmar Sigurðardóttir lögfr./ upplýsingaftr.


Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar, Jákúp M. E. Muller skipherrann á Brimli og Kristján Þ. Jónsson framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar bera saman bækur sínar í brúnni á Brimli.


Brimil siglir úr Reykjavíkurhöfn áleiðis til Færeyja.

Fleiri Fréttir