
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Landhelgisgæslunni. Hann heitir Sólmundur Már Jónsson og er viðskiptafræðingur að mennt, fæddur árið 1965. Sólmundur hefur starfað sem hagfræðingur á Þjóðhagsstofnun og verið kennari í hagfræði við Verslunarskóla Íslands auk þess að vera fjármálastjóri hjá Fangelsismálastofnun og í dómsmálaráðuneytinu. Frá árinu 1999 hefur hann verið framkvæmdastjóri rekstrar- og þjónustusviðs hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík og var valinn úr hópi 41 umsækjanda um starfið. Sólmundur hefur störf hjá Landhelgisgæslunni 1. september næstkomandi.