
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 10. ágúst 2005.Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 15:57 í gær og tilkynnti um alvarlegt bílslys á þjóðveginum við Hallormsstaðaskóg. Tveir voru látnir og ein kona alvarlega slösuð eftir að fólksbíll og vörubíll höfðu skollið saman á veginum. Lögreglan á Egilsstöðum óskaði eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar sækti slösuðu konuna.
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 16:19. Hún lenti á Egilsstaðaflugvelli kl. 18:07 og og fór þaðan aftur með hina slösuðu kl. 18:14. Þyrlan lenti svo við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 19:57.Dagmar Sigurðardóttirlögfr./upplýsingaftr.