
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 16. ágúst 2005.
Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á varðskipinu Óðni tók þessa flottu mynd á Stakksfirði í gær þegar áhöfn TF-SYN æfði sig í að kasta út björgunarbátum nálægt varðskipinu. Eins og kunnugt er fylgir TF-SYN stundum þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún fer í löng björgunar- eða sjúkraflug og þá er gott öryggisins vegna að TF-SYN er þannig úr garði gerð að hægt er að kasta út úr henni björgunarbátum. Sama gildir einnig þegar TF-SYN er send til leitar að bátum sem hafa sent út neyðarkall eða dottið út úr sjálfvirka eftirlitskerfinu hjá Vaktstöð siglinga eða úr fjareftirliti stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.Dagmar Sigurðardóttirlögfr./upplýsingftr.