
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Laugardagur 10. september 2005.Staðan í aðgerðum á Viðeyjarsundi er að kafarar frá lögreglu, slökkviliði og björgunarsveitum fundu konu sem leitað var að eftir að skemmtibátur lenti á skeri og sökk á Viðeyjarsundi í nótt. Konan var látin. Leit stendur nú yfir af karlmanni sem saknað er og eru fjörur gengnar frá Geldinganesi út á Seltjarnarnes ásamt því að leit fer fram á sjó og úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. Nú er unnið að því að lyfta bátnum upp með pramma og koma honum í land.
Sameiginleg fréttatilkynning frá Lögreglunni í Reykjavík, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslunni og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.