
Miðvikudagur 21. september 2005. Áhöfn Sifjar, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út í þrígang í gær og var einnig í viðbragðsstöðu vegna neyðarsendinga sem bárust um gervihnött. Fyrsta útkallið var vegna neyðarkalls frá skipstjóra Þjóðbjargar, sem sagt var frá í fréttatilkynningu í gær. Þyrlan kom á staðinn um svipað leyti og bátar sem höfðu verið í grenndinni og hélt til baka til Reykjavíkur þegar tryggt var að skipstjórinn var ekki í hættu. Þetta gerðist milli kl. 9 og 10 í gærmorgun. Neyðarlínan gaf síðan stjórnstöð Landhelgisgæslunnar samband við lögreglu á Blönduósi kl. 11:35 en lögreglan óskaði eftir þyrlu í samráði við lækni á svæðinu vegna manns á sveitabæ í Hrútafirði sem hafði fengið metangaseitrun og var meðvitundarlaus. Beðið var um að þyrlan kæmi á móti sjúkrabíl sem sendur hafði verið af stað með manninn. Áhöfn Lif flutti manninn á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi en þar lenti þyrlan kl. 13.