
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 26. október 2005.Læknir á Ólafsvík hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 13:06 og óskaði eftir þyrlu til að sækja mann sem var með kransæðastíflu.
Áhöfn björgunarþyrlunnar Lífar var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 13:33. Lent var á Rifi en þangað var sjúklingurinn fluttur með sjúkrabíl. Þar sem flytja átti manninn á Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut lenti þyrlan við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli og þar beið sjúkrabíll eftir manninum. Þyrlan lenti þar kl. 14:48.Dagmar Sigurðardóttir lögfræðingur/upplýsingaftr.