
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 26. október 2005.
Nú eru 6 kafarar frá Landhelgisgæslunni að vinna við að losa nótina úr skrúfu síldveiðiskipsins Hákons EA-148 í Sundahöfn en varðskipið Ægir kom með Hákon til Reykjavíkur snemma í morgun. Vel gekk að draga skipið til hafnar að sögn Halldórs Nellett skipherra á Ægi og er búist við að köfurunum takist að ná nótinni úr skrúfunni í kvöld.
Meðfylgjandi mynd tók Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður á varðskipinu Ægi af síldveiðiskipinu Hákoni er varðskipið var með það í drætti í gær.Dagmar Sigurðardóttir lögfræðingur/upplýsingaftr.