Ægismenn á reykköfunarnámskeiði hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins

11. nóvember, 2005

Föstudagur 11. nóvember 2005.


 


Áhafnir varðskipa Landhelgisgæslunnar þurfa að vera í stakk búnar til að bregðast við margvíslegum vandamálum á hafi úti.  Meðal annars þurfa áhafnirnar að geta slökkt eld um borð í skipum og jafnvel sækja fólk inn í brennandi skip.


 


Til þess að kunna réttu viðbrögðin fara reykkafarar og vettvangsstjórar varðskipanna reglulega á námskeið hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS) og þjálfa sig í reykköfun og slökkvistörfum á æfingasvæði þess við Úlfarsfell.  Starfsmenn SHS sjá um þjálfunina. Jón Páll Ásgeirsson yfirstýrimaður á varðskipinu Ægi tók meðfylgjandi myndir á námskeiði sem Ægismenn fóru á nýlega.  Að þessu sinni var æfð leit og björgun, leitað var í gámum fullum af reyk og fólki bjargað út úr þeim.Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.


 Hásetarnir á Ægi, Hinrik og Óskar, nýkomnir út úr reiknum, sótugir og fínir.


Þrír reykkafarar að koma út úr kófinu í fullum herklæðum

Fleiri Fréttir