
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 17. janúar 2006.Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk beiðni um aðstoð þyrlu vegna bílslyss við Húnaver í Langadal kl. 23:18 í gærkvöldi. Neyðarlínan gaf samband við lækni sem var á staðnum og óskaði hann eftir þyrlunni. Áhöfn Lífar, stóru björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar, var þegar kölluð út. Fór þyrlan í loftið kl. 23:57 og var komin til Blönduóss kl. rúmlega 1 en þangað hafði hinn slasaði verið fluttur.
Þyrlan hélt af stað til Reykjavíkur kl. 1:20 og lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 2:18.Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.