6. febrúar, 2006
Mánudagur 6. febrúar 2006.Í síðustu viku fóru fram viðræður í Washington í Bandaríkjunum um framhald varnarsamstarfs Íslands og Bandaríkjanna. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, var einn af fulltrúum í sendinefnd íslenskra stjórnvalda.Eins og fram hefur komið í fréttum hafa íslensk stjórnvöld m.a. viðrað hugmyndir um að þyrlusveit Landhelgisgæslunnar taki að sér hluta af verkefnum varnarliðsins er lúta að leit og björgun. Mál þessi eru til skoðunar og mun Landhelgisgæslan ekki tjá sig frekar um þau að svo komnu máli og vísar á ráðuneyti dómsmála og utanríkismála þar sem þessi mál eru til umfjöllunar.Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.
Úr myndasafni LHG. Það er sjaldan sem mynd næst af báðum þyrlum Landhelgisgæslunnar á flugi í einu. Þessa mynd tók áhöfn danska varðskipsins Triton á sameiginlegri æfingu Landhelgisgæslunnar og varðskipsins.