Sjúkraflug björgunarþyrlunnar Lífar með slasaðan sjómann

8. febrúar, 2006

Miðvikudagur 8. febrúar 2006.Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, flutti slasaðan sjómann á sjúkrahús í Reykjavík seinnipartinn í dag.

Skipstjórinn á frystitogaranum Frera hringdi í Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 13:47 og óskaði eftir aðstoð vegna skipverja sem hafði slasast um borð er gilskrókur lenti á honum. Skipverjinn hafði hlotið slæm beinbrot.  Skipið var þá statt út af Víkurál um 60 sjómílur norðvestur af Bjargtöngum eða 160 sjómílur frá Reykjavík. 


 


Áhöfn Lífar, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 14:20.  Hægviðri og ágætis skyggni var á leiðinni.  Læknir og sigmaður sigu um borð í skipið, bjuggu um áverka hins slasaða og gáfu honum lyf áður en hann var hífður um borð í þyrluna en því var lokið um kl. 16. 


Þyrlan lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi um kl. 17.Dagmar Sigurðardóttir

lögfræðingur/upplýsingaftr.

Fleiri Fréttir