Leit að báti út af Ánanaustum

12. febrúar, 2006


Sunnudagur 12. febrúar 2006.


 


Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga barst tilkynning gegnum Neyðarlínuna um að vegfarendur á norðanverðu Seltjarnarnesi hefðu séð eitthvað sem líktist báti í neyð um kl. 17:40.  Var talið að báturinn hafi verið staddur í voginum undan Ánanaustum.


 


Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru þegar kallaðar út og fóru björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar strax til leitar.  Er þau höfðu leitað í um 40 mínútur var ákveðið að kalla út Líf, björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar, til að aðstoða við leitina. 


 


Líf fór í loftið kl. 19 og leitaði í tæpar tvær klukkustundir.  Taldi áhöfn þyrlunnar að hún væri þá búin að kemba allt svæðið sem kom til greina en við leitina notaði áhöfnin hitamyndavél og var einnig búin nætursjónaukum. Leitarskilyrði voru góð þrátt fyrir talsverðan vind, lítill sjógangur var á svæðinu og bjart af tungli.


 


Er þyrlan hætti leit höfðu borist vísbendingar frá öðrum vegfarendum sem töldu að einungis hefði verið um rusl eða jafnvel hval að ræða.  Leit var formlega hætt kl. 22.


 


Dagmar Sigurðardóttir

lögfræðingur/upplýsingaftr.

Fleiri Fréttir