Landhelgisgæslan og 112 dagurinn

12. febrúar, 2006

Sunnudagur 12. febrúar 2006


Eins og fram kom í fréttatilkynningu í síðustu viku tók Landhelgisgæslan þátt í 112 deginum með ýmsum hætti.  Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni var með myndavélina á lofti nú sem endranær og náði skemmtilegum myndum á Faxagarði. Einnig hafa borist myndir frá Ingu Hönnu Guðmundsdóttur starfsmannastjóra Landhelgisgæslunnar og Hilmari Snorrasyni skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna


Sigurður Steinar Ketilsson skipherra og afastrákurinn hans, Daníel Freyr, á brúarvængnum á varðskipinu Tý.Þarna sjást m.a. varðskipin tvö við bryggju, Óðinn og Týr á bak við hann, og björgunarþyrlan Sif.´Fólki gafst kostur á að skoða björgunartæki þjóðarinnar.


Sigurður Steinar Ketilsson skipherra á Tý, Björn Brekkan Björnsson flugrekstrarstjóri og þyrluflugmaður, Hörður Ólafsson læknir í þyrluáhöfn og Magnús Örn Einarsson yfirstýrimaður í flugdeild.



Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni mætti á svæðið og tók mikið af myndum sem sjá má hér að ofan.



Gestir á öllum aldri höfðu mikinn áhuga á að skoða TF-SIF.


 


 

Fleiri Fréttir