Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan vélsleðamann í Reykholt

18. febrúar, 2006

Laugardagur 18. febrúar 2006.

 

Læknir í Borgarnesi hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga gegnum Neyðarlínuna kl. 16:16 og óskaði eftir þyrlu í viðbragðsstöðu vegna manns sem hafði slasast á vélsleða á Langjökli.

 

Sif, björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, fór í loftið kl. 16:40 og var komin í Reykholt stundarfjórðungi síðar en þangaði hafði slasaði vélsleðamaðurinn verið fluttur með sjúkrabíl.

 

Þyrlan lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 17:30.Dagmar Sigurðardóttir

lögfræðingur/upplýsingaftr<

Úr myndasafni: Sif, björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar.

Fleiri Fréttir