Niðurstöður í forvali vegna smíði nýs varðskips birtar

21. febrúar, 2006

Þriðjudagur 21. febrúar 2003.


Niðurstaða er fengin í forvali um hönnun og smíði á nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæslu Íslands eins og fram kemur á heimasíðu Ríkiskaupa. Eingöngu bárust þátttökutilkynningar frá erlendum skipasmíðastöðum og voru þær frá eftirfarandi aðilum:


Aker Brattvaag Skibsverft A/S., Noregi.


Asmar, Chile.


Astilleros Armon S,A. Spáni.


Bergen Yards AS, Noregi.


Gdansk Stocznia Remontowa im, Póllandi.


Chantiers De’ Atlantique (Alstom Naval), Frakklandi.


China Ship Building Trading Company, Kína.


Damen Shipyards Goringchem, Hollandi.


Devenport Royal Dockyard Limited, Englandi.


Fincantieri Cantieri Navali, Ítalíu.


Navantia S.A, Spáni.


Karstensens Skibsværft A/S, Danmörku.


Peene-Werft GmbH, Þýskalandi.


Simek A/S, Noregi.


Thyssen Krupp Marine Systems (TKMS), Þýskalandi.


Eftir skoðun tilkynninganna var ákveðið að velja sex stöðvar til áframhaldandi þátttöku. Þær kröfur sem gerðar voru til þeirra vegna þessa eru m.a.: að þær væru viðurkenndar af Lloyds eða sambærilegum aðila, ISO vottun eða sambærilegt, að jákvætt eigið fé næmi a.m.k. 5 milljónum evra og að eiginfjárhlutfall sé að  lágmarki 13%. Þá er gerð krafa um að viðkomandi hafi borgað öll opinber gjöld, sé með aðstöðu til að byggja skipin og geti byggt/afhent skipin á innan við 30 mánuðum frá undirritun samnings. Viðkomandi aðilar þurfa að hafa smíðað að lágmarki 2 sambærileg skip frá  árinu 2000 sem eru starfrækt í Norðursjó eða á Norður-Atlantshafi.


 


Fyrirtæki sem uppfylltu kröfurnar eru:


Aker frá Noregi.


Asmar frá Chile


Bergen frá Noregi


Damen frá Hollandi.


Peene – Werft frá Þýskalandi.


SIMEK frá Noregi.


 


 

Fleiri Fréttir