Einn maður lést og annar slasaðist er þeir féllu í jeppa niður um sprungu á Hofsjökli

26. febrúar, 2006

Sunnudagur 26. febrúar 2006.

 

Einn maður lést og annar slasaðist er þeir féllu í jeppa niður um sprungu á Hofsjökli. Þeir komu með þyrlu Varnarliðsins á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi um kl. 1 í nótt.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar/vaktstöð siglinga bárust upplýsingar um slysið á Hofsjökli um kl. 15:17 og höfðu varðstjórar í stöðinni þegar samband við danska varðskipið Triton sem statt er í Reykjavíkurhöfn og óskuðu eftir aðstoð þyrlu skipsins. Einnig var haft samband við Varnarliðið og óskað eftir þyrluaðstoð þaðan. Þyrla danska varðskipsins Triton var reiðubúin til flugtaks upp úr kl. 16 og tók með sér tvo slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og einn björgunarsveitarmann frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu.  Tvær þyrlur fóru frá Varnarliðinu og flutti önnur þeirra íslenskan lækni á slysstað.Þyrla Tritons fann slysstaðinn um kl. 17:50 og lentu þyrlurnar þar um kl. 18. Björgunaraðgerðir hófust þegar en afar erfitt reyndist að ná mönnunum út úr bílnum.  Annar þeirra var látinn en hinn slasaður.Um kl. 19:39 fór flugvél Landhelgisgæslunnar, Syn, í loftið en hún var notuð sem endurvarpi fyrir fjarskipti milli björgunaraðila á slysstað.  Hún var á flugi í um 5 tíma og 40 mínútur.Þyrla varnarliðsins flutti báða mennina til Reykjavíkur og var hinn slasaði fluttur á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.

 

Þyrlur Landhelgisgæslunnar voru báðar óvirkar.  Líf, stóra björgunarþyrla Gæslunnar, var í 3000 tíma skoðun en það er mjög viðamikil skoðun sem tekur nokkrar vikur. Búist er við að hún komist í gagnið upp úr miðjum mars. Sif, minni björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar, var einnig óvirk vegna ófyrirséðs viðhalds en beðið er eftir varahlutum í hana og er reiknað með að hún komist í gagnið í vikulok.Landhelgisgæslan er með samstarfssamning við Varnarliðið um gagnkvæma aðstoð við leit og björgun og felur samningurinn það í sér að Varnarliðið er látið vita ef þyrlur Landhelgisgæslunnar eru óvirkar og þá er leitast við að hafa þyrlur Varnarliðsins í viðbragðsstöðu.  Landhelgisgæslan er einnig með samstarfssamning við danska sjóherinn, Coop Saga, sem kveður á um gagnkvæma aðstoð við leit og björgun. Svo heppilega vildi til að danska varðskipið Triton var við bryggju í Reykjavíkurhöfn í gær og brást áhöfnin á Triton og Varnarliðsmenn fljótt og vel við aðstoðarbeiðni frá Landhelgisgæslunni.Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.


 

 


 

 

Fleiri Fréttir