Flutningi í Skógarhlíð fagnað

27. febrúar, 2006

Mánudagur 27. febrúar 2006.Mikið var um dýrðir í Skógarhlíðinni sl. föstudag er Landhelgisgæslan var með móttöku í tilefni af flutningi höfuðstöðva Landhelgisgæslunnar, sjómælingasviðs og stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar frá Seljavegi 32 í Reykjavík í Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð 14.


Flutningunum lauk að mestu 23. janúar sl. en þá voru skrifstofan og sjómælingasvið komin í Skógarhlíð. Flutningur stjórnstöðvar hafði þegar farið fram en hún er sem kunnugt er í vaktstöð siglinga í Björgunarmiðstöðinni.


Jón Páll Ásgeirsson skipstjórnarmaður var með myndavélina á lofti og náði þessum skemmtilegu myndum.


Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Georg Kr. Lárusson forstjóri í nýju andyri skrifstofuhúsnæðis Landhelgisgæslunnar í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð.Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar flutti tölu og sagði:Saga Gæslunnar  nær allt frá árinu 1926 og verður rakin til Vestmannaeyja þar sem hornsteinninn var upphaflega lagður. Síðan þá hefur Gæslan verið á ýmsum stöðum svo sem hjá Ríkisskipum og hjá Vita- og hafnamálastofnun og síðast sjálfstæð stofnun á Seljaveginum. Á þessu 80 ára afmælisári er óhætt að segja að það fari vel á því að Landhelgisgæslan flytji í sérhannað húsnæði hér í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Á þessari stundu er okkur sem vinnum hjá Landhelgisgæslunni efst í huga þakklæti til dómsmálaráðherra og allra þeirra sem hafa gert Gæslunni kleift að komast hingað í Skógarhlíð. Ég veit að það var ekki létt verk og við upphaf þess voru uppi margar úrtölu- og efasemdarraddir. Nú í dag heyrast  þær ekki.  Það er ekki einasta að við höfum fengið hér bjart og gott húsnæði heldur er starfsemi Landhelgisgæslunnar mun meiri eining en áður var. Hér í húsinu er einnig Vaktstöð siglinga sem er rekin í góðu samstarfi við Neyðarlínuna og Slysavarnarfélagið Landsbjörgu  og þar inni  er einnig stjórnstöð Gæslunnar. Sjómælingar Íslands eru hér fyrir neðan okkur og  hér á hæðinni sem við erum nú á eru höfuðstöðvarnar með viðbót frá flugvellinum, en hér hafa starfstöð nokkrir af okkar lykilmönnum sem tengjast fluginu. Nálægðin við flugvöllinn breytir miklu frá því sem var. Öll tengsl eru meiri og betri svo miklu munar. Ein mesta breytingin fyrir okkur starfsmenn Landhelgisgæslunnar er sambýlið við okkar ágætu nágranna. Með komu Gæslunnar í Björgunarmiðstöðina má segja að hringnum sé í vissum skilningi lokað. Það gefur auga leið að nálægðin við aðra viðbragðsaðila og þá aðra er vinna í sama geira og við, hlýtur að skapa meira hagræði, og  ekki síst öryggi fyrir íbúa þessa lands. Við eigum fjölmarga snertifleti og samstarfsmöguleika sem eru þegar margir nýttir og eiga eftir að verða virkjaðir í mun ríkara mæli eftir því sem frá líður. Það má því með nokkru sanni segja að við höfum á vissan hátt sloppið úr hálfgerðri einangrun við flutninginn hingað í Björgunarmiðstöðina. Hér eru okkar helstu samstarfsaðilar með aðsetur en þeir hafa allir  tekið einstaklega vel á móti okkur og fyrir það erum við þakklát.  Hjá Landhelgisgæslu Íslands starfar gott og samhuga fólk sem ber mikinn metnað til sinna starfa. Sá metnaður nær langt út fyrir starfslok eins og sjá má hér með myndarlegri þátttöku fyrrverandi starfsmanna sem láta sér annt um alla starfsemi Gæslunnar. Landhelgisgæslan gengur nú í gegnum mikla breytingar og kannski á vissan hátt endurnýjun lífdaga. Það er óþarft að rekja fyrir ykkur sem hér eru allt það sem er að gerast þessa dagana og stjórnvöld eru að vinna að undir öruggri forystu dómsmálaráðherra, en með vissum sanni má segja flest okkar tæki og öll okkar vinna sé í gagngerri endurnýjun. Þessar umbreytingar geta á stundum verið erfiðar og jafnvel einhverjum sársaukafullar en allt þetta mikla framtak blæs okkur sem hér vinnum eldmóð í brjóst. Við erum staðráðin í að halda áfram af kappi og bjartsýni, með það að leiðarljósi að sinna okkar skyldum, sem eru: Að vera til taks, vinna þessari þjóð gagn og veita henni öryggi. Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra afhenti Georgi Kr. Lárussyni forstjóra að gjöf til Landhelgisgæslunnar tvær innrammaðar ljósmyndir eftir Valdimar Jónsson sem var loftskeytamaður hjá Landhelgisgæslunni í áratugi og allt myndasafn hans úr starfi Landhelgisgæslunnar á tölvutæku formi en þær myndir skipta þúsundum.  Ráðherra óskaði Landhelgisgæslunni til hamingju með nýja húsnæðið og sagði að unnið væri að því að efla Landhelgisgæsluna með margvíslegum hætti, með kaupum á nýju varðskipi, nýrri eftirlitsflugvél, nýju lagafrumvarpi sem verið væri að vinna í og síðast en ekki síst með þessu nýja húsnæði. Hann sagði jafnframt frá því að stefnt væri að því að styrkja för varðskipsins Óðins til Hull næsta sumar en þar verður minningarathöfn og afhjúpun minnisvarða um breska sjómenn sem farist hafa við Íslands strendur og jafnframt minnisvarði um sjómenn sem bjargað var og björgunarmenn þeirra. Þá verða einnig liðin 30 ár frá lokum síðasta þorskastríðs. Að síðustu sagði ráðherrann að verið væri að undirbúa að Óðinn verði afhentur Sjóminjasafni Íslands.


Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins flutti ávarp og hann ásamt Birni Gíslasyni, framkvæmdastjóra SHS fasteigna, sem á og rekur húseignina í Skógarhlíð 14, buðu Landhelgisgæsluna velkomna í húsið og afhentu Georgi Kr. Lárussyni forstjóra lykil á platta eins og aðrir aðilar í húsinu hafa fengið að gjöf frá SHS.Jón Magnússon fyrrverandi lögmaður og blaðafulltrúi Landhelgisgæslunnar flutti ávarp og rifjaði meðal annars upp skemmtilegar uppákomur sem hann lenti í í starfi sínu sem blaðafulltrúi í einu af þorskastríðunum. Hann afhenti Georgi Kr. Lárussyni mynd eftir Sigmund sem teiknarinn hafði gefið honum en það er skopmynd af varðskipinu Tý og bresku freigátunni Falmouth. 


Ungir og gamlir gæslumenn voru mættir til að fagna nýja húsnæðinu. Hér má sjá Gunnar Pétursson sem var starfsmaður Sjómælinga Íslands, Sverri Erlingsson og Tómas Vilhjálmsson flugvirkja hjá LHG og Garðar Pálsson fyrrverandi skipherra LHG.Við kortaborðið hjá sjómælingasviði LHG/Sjómælingum Íslands. Níels Bjarki Finsen verkefnisstjóri ENC (rafrænna sjókorta) og umsjónarmaður heimasíðu LHG, Páll Geirdal yfirstýrimaður í flugdeild LHG og Vilbergur Magni Óskarsson fyrrverandi yfirstýrimaður hjá LHG en starfar nú sem sviðsstjóri skipstjórnarsviðs í Fjöltækniskólanum. Vinstra megin við borðið standa m.a. Ólafur Valur Sigurðsson fyrrverandi skipherra LHG, Guðjón Petersen sem var áður skipstjórnarmaður hjá LHG og framkvæmdastjóri Almannavarna, Sigurður Þ. Árnason fyrrverandi skipherra LHG, Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Bragi Ólafsson fyrrverandi launafulltrúi LHG, Eggert Ólafsson fyrrverandi yfirvélstjóri LHG, Leif Bryde varðstjóri í stjórnstöð LHG/vaktstöð siglinga og hinu megin við borðið má sjá Stefán Eiríksson skrifstofustjóra dómsmála- og löggæslusviðs dómsmálaráðuneytis og Harald Johannesen ríkislögreglustjóra. Í forgrunni er Valdimar Jónsson loftskeytamaður sem starfaði hjá LHG.Snjólaug Guðjohnsen sjókortagerðarmaður og Arnbjörg Gunnlaugsdóttir bókari en báðar eru starfsmenn LHG.


Níels Bjarki Finsen og Ragnhildur Magnúsdóttir gjaldkeri LHG.


Garðar Pálsson fyrrverandi skipherra hjá LHG, Inga Hanna Guðmundsdóttir starfsmannastjóri LHG, Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Kristján Þ. Jónsson framkvæmdastjóri aðgerðasviðs LHG.


Jón Ebbi Björnsson varðstjóri í stjórnstöð LHG/vaktstöð siglinga, Berent Th. Sveinsson fyrrverandi yfirloftskeytamaður og varðstjóri í stjórnstöð LHG, Sigurður Steinar Ketilsson skipherra á varðskipinu Tý og Sigurður Þ. Árnason fyrrverandi skipherra hjá LHG.


Inga Hanna Guðmundsdóttir, Sigríður Ragna Sverrisdóttir sjókortagerðarmaður og Eygló Ólöf Birgisdóttir launafulltrúi, starfsmenn Landhelgisgæslunnar.


Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.


 


 


 


 

Fleiri Fréttir