Æfingaflug nemenda í varðskipadeild Fjöltækniskólans með Syn

28. febrúar, 2006

Þriðjudagur 28. febrúar 2006.Í lok síðustu viku fóru nemendur varðskipadeildar Fjöltækniskólans í æfingaflug með Syn, Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, þar sem farið var yfir verklag við töku á skipum og leitaraðferðir í flugvélum. Fyrr um daginn höfðu nemendurnir setið kynningu á löggæslu, leit og björgun með flugvélum.Mikilvægur þáttur í námi skipstjórnarmanna í varðskipadeild er útreikningur reks, uppsetning leitar og vettvangsstjórnun á leitarsvæðum. Á meðfylgjandi mynd eru nemendurnir ásamt áhöfn TF-SYN.


Auðunn F. KristinssonyfirstýrimaðurFrá Vinstri:  Vilhjálmur Ó. Valson, Pétur Steinþórsson, Tómas Helgason, Andri Leifsson, Pálmi Jónsson, Guðmundur Jónsson, Pétur Pétursson, Arnar Páll, Sigurður Sigurðsson, Auðunn Kristinsson og Magnús Einarsson.

Fleiri Fréttir