
Þriðjudagur 28. febrúar 2006.Starfsmenn sprengjusveitar Landhelgisgæslunnar unnu nýlega með sérfræðingum frá Íslenskum orkurannsóknum (ISOR) og starfsmönnum Jarðborana hf. við að losa jarðborinn Geysi sem sat fastur á 1.2 km dýpi nálægt Reykjanesvita. Jarðborinn hafði verið notaður við að hreinsa borholu númer 17 þegar jarðvegur hrundi að bornum og hann festist. Þegar sprengjusveitin var kölluð til var búið að reyna allar hefðbundnar aðferðir til að losa borinn en allt kom fyrir ekki. Það var því ekki um annað að ræða en að losa hann með sprengiefni.
Vinnan, sem stóð samfellt í nærri 3 daga, bar að lokum árangur með því að látin var síga sérstaklega hönnuð álags- og hitaþolin, kraftmikil sprengjuhleðsla niður í borstangirnar og hún sprengd til að að brjóta í sundur borstöng.Landhelgisgæslan gerði samning við Íslenskar orkurannsóknir árið 2004 um þjónustu og tæknivinnu við notkun sprengiefna við borholur. Það var á grundvelli þess samnings sem sprengjusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð til.Meðfylgjandi myndir tók Ómar Sigurðsson starfsmaður ÍSOR.Dagmar Sigurðardóttir / Adrian King
Jarðborinn Geysir.
Starfsmenn Jarðborana hf. við borstöngina sem var föst á 1.2 km. dýpi.