
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Vaktstöð siglinga / stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk boð í gegnum Neyðarlínuna um kl. 17:08 um að kona hefði slasast á vélsleða á Langjökli. Áhöfn, Sifjar, björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar var þegar kölluð út.
Þyrlan fór í loftið kl. 17:35. Það tók talsverðan tíma að finna fólkið sem kallaði eftir aðstoðinni enda var skyggni lélegt. Þyrlan lenti á jöklinum um kl. 19 og nokkrum mínútum síðar var slasaða konan komin um borð í þyrluna. Lent var við Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi kl. 19:38.Meiðsli konunnar voru mun minni en upphaflega var talið og fékk hún að fara heim að lokinni skoðun á spítalanum.
Dagmar Sigurðardóttir