Týr 31 árs

30. mars, 2006

Fimmtudagur 30. mars 2006.Síðastliðinn föstudag var liðið 31 ár frá því að varðskipið Týr kom í fyrsta sinn til Reykjavíkur. Af því tilefni buðu skipherra og áhöfn Týs samstarfsfélögum hjá Landhelgisgæslunni í vöfflukaffi. Þetta var gott tækifæri fyrir starfsfólk Landhelgisgæslunnar að sjá Tý í upprunalegri mynd því skipinu verður siglt til Póllands í næsta mánuði þar sem breytingar og endurbætur verða gerðar á því.Jón Kr. Friðgeirsson bryti lét sér ekki nægja að töfra fram vöfflur handa öllum gestunum, hann sá einnig um myndatöku í boðinu.Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.


 


Sigurður Steinar Ketilsson skipherra í kvennafans fyrir utan skipherrakáetuna. Þóra Sif Sigurðardóttir fulltrúi á rekstrarsviði og Eygló Ólöf Birgisdóttir launafulltrúi mættar í vöfflukaffi.Georg Kr. Lárusson forstjóri, Sólmundur Már Jónsson framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, Ólafur Valur Sigurðsson fyrrverandi skipherra á Tý og Gylfi Geirsson forstöðumaður fjarskiptaþróunar og fjareftirlitsdeildar LHG ræða málin í skipherrakáetunni.


Ragnhildur Magnúsdóttir gjaldkeri, Inga Hanna Guðmundsdóttir starfsmannastjóri, Arnbjörg Gunnlaugsdóttir bókari, Kristján Þ. Jónsson framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, Steinvör I. Gísladóttir ritari forstjóra og Ólafur Valur Sigurðsson skipherra.Starfsmenn gæða sér á vöfflum í borðsal Týs.


 

Fleiri Fréttir