Þrjú erlend karfaskip á Reykjaneshrygg – þar af eitt sjóræningjaskip

31. mars, 2006


Föstudagur 31. mars 2006.Karfaveiðar á Reykjaneshrygg eru nú að komast í fullan gang og þrjú erlend skip komin á slóðina.


Í eftirlitsflugi Synjar, Fokkerflugvélar Landhelgisgæslunnar, í dag sá áhöfnin karfaskip sem skráð er í Georgíu á siglingu u.þ.b. 15 sjómílur utan við íslensku efnahagslögsöguna suðvestur af Reykjanesi. Það er innan fiskveiðistjórnunarsvæðis Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).


Skipið heitir Pavlovsk og er eitt af sjóræningjaskipunum sem skráð eru á lista NEAFC yfir skip sem veiða án leyfis og kvóta á fiskveiðistjórnunarsvæði nefndarinnar. Sjá listann yfir sjóræningjaskip á eftirfarandi slóð:http://neafc.org/measures/iuu_b.htm


Syn flaug tvisvar yfir skipið og í bæði skiptin var það með veiðarfærin uppi á þilfari þannig að það var ekki staðið að ólöglegum veiðum að þessu sinni.


Hin skipin tvö eru bæði lögleg og með leyfi. Annað rússneskt og hitt frá Lettlandi.Hafsteinn Heiðarsson flugstjóri á Syn tók meðfylgjandi mynd af sjóræningjaskipinu Pavlovsk í eftirlitsfluginu í dag.


Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.Sjóræningjaskipið Pavlovsk á siglingu. Veiðarfærin uppi á þilfari.

Fleiri Fréttir