
Miðvikudagur 12. apríl 2006.
Í eftirlitsflugi Synjar, Fokkerflugvélar Landhelgisgæslu Íslands, á svæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) á Reykjaneshrygg kom áhöfnin auga á þrjú svokölluð sjóræningjaskip sem skráð eru í Georgíu. Þetta eru skipin Pavlovsk 4LNI, Dolphin 4LEQ og Ulla 4LLA. Aðeins sást til eins þeirra að veiðum. Það var sjóræningjaskipið Pavlovsk.
Sjá lista yfir svokölluð IUU-skip (Illegal, unreported, unregulated fishing) á heimasíðu NEAFC sem Ísland er aðili að: http://www.neafc.org/Listinn er undir dálkinum scheme 2006 lengst til hægri en staðfesti listinn er IUU-B list.Skýrsla um málið ásamt myndum af skipunum er send til sjávarútvegsráðuneytisins sem kemur upplýsingunum á framfæri við aðalskrifstofur NEAFC. Meðfylgjandi er mynd sem áhöfn Synjar tók í gær af sjóræningjaskipinu Ullu á reki inni á fiskveiðistjórnunarsvæði NEAFC á Reykjaneshrygg.Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingftr.
Sjóræningjaskipið Ulla á reki úti á Reykjaneshrygg.