Sjóræningjaskip halda uppteknum hætti á Reykjaneshrygg

17. apríl, 2006

Mánudagur 17. apríl 2006.


Meðfylgjandi eru mynd tók Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á varðskipi Landhelgisgæslunnar í fyrradag af sjóræningjaskipinu Dolphin (kallmerki 4LEQ) þar sem skipið var að ólöglegum karfaveiðum við 200 sjómílna mörkin á Reykjaneshrygg.Samkvæmt upplýsingum frá skipherra varðskipsins, Halldóri Nellett, var skipstjóranum tilkynnt að hann væri að ólöglegum veiðum á fiskveiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) og að gerðar yrðu viðeigandi ráðstafanir vegna þess.


Alls eru nú 6 sjóræningjaskip við ólöglegar karfaveiðar (IUU veiðar – illegal, unregulated, unreported fishing á NEAFC svæði) rétt utan við  200 sjómílna efnahagslögsögu Íslands.Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.


Sjóræningjaskipið Dolphin.


 


 

Fleiri Fréttir