
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 19. apríl 2006.
Landhelgisgæslan hefur upplýsingar um 42 karfaskip á NEAFC svæðinu á Reykjaneshrygg. Skip frá aðildarlöndum NEAFC, öðrum en Íslandi, eru 27 talsins og eru frá eftirtöldum ríkjum: 5 skip frá Spáni, 15 skip frá Rússlandi, 1 skip frá Litháen, 1 skip frá Lettlandi, 1 skip frá Portúgal, 1 skip frá Noregi, 1 skip frá Færeyjum, 1 skip frá Þýskalandi, 1 skip frá Grænlandi. Auk þess eru 6 íslensk skip á svæðinu.
Sjóræningjaskipin eru 9 talsins en þar af eru 8 skráð í Georgíu. Það eru skipin Carmen, Dolphin, Eva, Isabella, Juanita, Rosita, Pavlovsk og Ulla. Svo er eitt sjóræningjaskip frá Hondúras en það heitir Santa Nikolas.