Eftirlit með sjóræningjum á svæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins

12. maí, 2006

Föstudagur 12. maí 2006.Syn, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, fór í gæsluflug í morgun m.a. til að kanna ástandið á úthafskarfaslóð á Reykjaneshrygg.  Á meðfylgjandi myndum má sjá sjóræningjaskipið Evu, sem skráð er í Georgíu, með veiðarfærin úti.  


Í eftirlitsfluginu sáust auk sjóræningjaskipsins Evu fleiri sjóræningjaskip frá Georgíu en það eru Carmen, Rosita, Juanita, Pavlovsk, Dolphin, Ulla og Isabella.  Aflabrögð á svæðinu eru sæmileg að sögn skipstjóra sem eru þar að karfaveiðum.Eins og áður hefur komið fram getur Landhelgisgæslan ekki fært erlenda togara, sem stunda ólöglegar veiðar á úthafinu, til hafnar en tilkynnt verður um athafnir þeirra til Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins sem gerir viðeigandi ráðstafanir.  Skipin fara á svartan lista og það verður til þess að þau eiga ekki að fá neina þjónustu í höfnum aðildarríkja ráðsins. Þar er um að ræða Evrópusambandslöndin öll, Rússland, Eistland, Færeyjar, Grænland og Noreg auk Íslands.


Sjá heimasíðu Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins – NEAFC á slóðinni:http://neafc.org/


Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.Sjóræningjaskipið Eva. Mynd LHG/áhöfn Synjar, eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar.Sjóræningjaskipið Eva. Mynd LHG/áhöfn Synjar, eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar.


 

Fleiri Fréttir