Síðasta fallbyssuæfingin á varðskipinu Óðni

12. maí, 2006


Föstudagur 12. maí 2006.Eins og flestir vita eru varðskip Landhelgisgæslunnar búin fallbyssum enda fátt annað sem getur fengið erlenda skipstjóra sem stunda ólöglega starfsemi á hafinu til að hlýða nema ógnin sem stafar frá þeim. Vegna þessa þurfa varðskipsmenn að halda sér í þjálfun og æfa sig reglulega í að nota fallbyssurnar.


Landhelgisgæslan mun að öllum líkindum hætta rekstri Óðins í núverandi mynd á þessu ári og því má búast við að fallbyssuæfing nú í byrjun mánaðar hafi verið sú síðasta á varðskipinu Óðni.


Með æfingunni þjálfaði vopnasveit varðskipsins sig í notkun fallbyssunnar og um leið lagði fagstjóri sprengjusveitar Landhelgisgæslunnar, sem hélt æfinguna, mat á hæfni starfsmanna til að beita henni. Einnig gafst nemendum á 4. stigi skipstjórnarsviðs Fjöltækniskólans, svokölluðum lávörðum, tækifæri til að fylgjast með æfingunni.


Skipherrann á varðskipinu Óðni, Einar H. Valsson, var ánægður með hvernig æfinginn heppnaðist en m.a. var farið yfir hvaða varúðarráðstafanir þarf að gera þegar hleypt er af svo öflugu vopni.<Myndirnar tók Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður.Adrian King                  fagstjóri sprengjusveitar


Fleiri Fréttir