Fagmannleg vinnubrögð – sjúkraflug út á Reykjaneshrygg

14. júní, 2006

Miðvikudagur 14. júní 2006.


Skipherrann á færeyska varðskipinu Brimil sendi Landhelgisgæslunni nýlega meðfylgjandi myndir sem teknar voru frá skipinu er áhöfn björgunarþyrlunnar Lífar sótti slasaðan sjómann um borð í Brimil úti á Reykjaneshrygg um mánaðarmótin síðustu. Þess ber að geta að sjómanninum heilsast ágætlega eftir hremmingarnar.


Sjómaður á norska togaranum Koralen hafði slasast og var færður yfir í Brimil. Áhöfn Lífar sótti hann þangað. Sjúkraflugið tók tæpar þrjár klukkustundir.Skipherrann á Brimli hafði orð á því í tölvupósti með myndunum að þarna hafi verið mjög fagmannlega að verki staðið og óskaði upplýsinga um börurnar sem áhöfn Lífar notar.Áhöfnina á Líf skipaði að þessu sinni Jakob Ólafsson þyrluflugstjóri, Björn Brekkan Björnsson þyrluflugmaður, Friðrik Höskuldsson stýrimaður/sigmaður, Reynir G. Brynjarsson flugvirki/spilmaður og Friðrik Sigurbergsson læknir.Dagmar Sigurðardóttirlögfræðingur/upplýsingaftr.











Fleiri Fréttir