Fréttatilkynning vegna öryggislendingar flugvélar frá Continental Airlines á Keflavíkurflugvelli miðvikudaginn 25. október 2006

6. nóvember, 2006

Vegna umræðna sem verið hafa að undanförnu um viðbrögð við öryggislendingu flugvélar frá Continental Airlines á Keflavíkurflugvelli miðvikudaginn 25. október vilja almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans, fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglu-stjórans, Flugmálastjórn Íslands, Landhelgisgæsla Íslands, Neyðarlínan – 112, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli og Vaktstöð siglinga koma eftirfarandi á framfæri.

Þegar boð berast frá flugvélum í neyð sem lenda eiga á Keflavíkurflugvelli er unnið samkvæmt Flugslysaáætlun Keflavíkurflugvallar. Í áætluninni er tiltekið hver viðbrögð skuli vera s.s. hvaða björgunarbúnað og mannskap skuli boða til starfa. Þar er einnig ákveðið hvert viðbúnaðaraðilum skuli stefnt. Viðbrögð fara eftir umfangi og alvarleika atviksins. Eitt af markmiðum áætlunarinnar er að hafa tiltækt nægt björgunarlið og búnað til að ráða við umfang verkefnisins.

Þegar ákvörðun er tekin um umfang aðgerða veltur hún á þeim upplýsingum sem fyrir liggja. Þær upplýsingar sem bárust viðbragðsaðilum gáfu til kynna að viðkomandi flugvél væri í neyð, ástand væri alvarlegt og að fjöldi manna gæti verið í hættu. Þegar boð bárust frá flugvélinni var hún stödd langt suðvestur af landinu og átti eftir u.þ.b. einnar klukkustundar flug til Keflavíkurflugvallar. Viðbragð miðaðist við þessar upplýsingar.

Síðar hefur komið á daginn að ástand flugvélarinnar var ekki eins alvarlegt og kom fram í samskiptum við flugstjóra hennar. Þessar upplýsingar komu fram við rannsókn atviksins eftir að flugvélin var lent. Ekki er hægt að meta umfang viðbragða eða réttmæti þeirra út frá upplýsingum sem fást úr rannsókn sem fram fer eftir að atvikið er afstaðið heldur verður að meta þessi atriði út frá þeim upplýsingum sem fyrir liggja þegar gripið er til aðgerða.

Það er mat þeirra aðila sem þátt tóku í aðgerðum 25. október að viðbrögðin sem gripið var til hafi verið í samræmi við þær upplýsingar sem lágu fyrir og að aðgerðir hafi gengið vel.

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjórans
Fjarskiptamiðstöð Ríkislögreglustjórans
Flugmálastjórn Íslands
Landhelgisgæsla Íslands
Neyðarlínan – 112
Slysavarnafélagið Landsbjörg
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli

Fleiri Fréttir