
Snemma morgun þriðjudaginn 19. desember strandaði flutningaskipið Wilson Muuga rétt sunnan við Sandgerði. Skipstjórinn tilkynnti strandið til Vaktstöðar siglinga / Stjórnstöðar Landhelgisgæslunnar sem kallaði til varðskip sín og þyrlur, önnur skip á svæðinu og kom boðum til lögreglu og björgunarsveita.
Átta áhafnarmeðlimir af danska strandgæsluskipinu Triton höfðu farið út á bát til þess að freista þess að aðstoða áhöfn flutningaskipsins en bátnum hvolfdi og féllu allir útbyrðis.
Áhöfn Líf, þyrlu Landhelgisgæslunnar, tókst á frækilegan hátt að bjarga úr sjónum 7 mönnum en sá áttundi var látinn þegar að var komið og var tekinn um borð í þyrluna síðar um morguninni. Ljóst er að nætursjónaukar skiptu sköpum við þessa björgun.
Þyrla LHG var send með stýrimann frá stofnuninni ásamt lögreglumanni um borð í flutningaskipið. Voru allir um borð, 12 menn, frá Rússlandi, Úkraínu og Póllandi fluttir í land með þyrlu Landhelgisgæslunnar Sif.
Landhelgisgæslan mun halda áfram aðgerðum á strandstað, m.a. fljúga með stýrimann um borð í dag til þess að meta aðstæður og kanna hugsanlega mengun, sem stafa kann frá skipinu.