
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 12. nóvember 2008
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í morgun, kl. 06:28 útkall á rás 16 frá Gullberg VE 292 um að skipið væri vélarvana með tólf menn um borð við Klettsnef, utan við innsiglinguna til Vestmannaeyja. Óttaðist að reka upp í klettana því stífur austan vindur var á svæðinu. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði samstundis út Björgunarfélagið í Vestmannaeyjum og Lóðsinn sem brugðust hratt við. Ekki var talin þörf á þyrlu LHG.
Kl. 06:54 barst tilkynning frá Gullbergi um að togarinn væri kominn á síðuna á Lóðsinum, væri úr hættu og kominn inn fyrir hafnargarðinn. Var togarinn kominn að bryggju í Vestmannaeyjum kl. 07:06.
Gullberg er 37 m. Langt togskip, alls 340 brl., með 12 manns í áhöfn.
12.11.2008/HBS