
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 26. janúar 2009
Í gær stóð varðskip Landhelgisgæslunnar línubát að meintum ólöglegum veiðum inni á skyndilokunarsvæði út af Vatnsleysuströnd. Um er að ræða skyndilokun nr. 8 sem auglýst var 21. janúar sl. eftir að Hafrannsóknastofnun hafði fengið upplýsingar um of hátt hlutfall smáfisks í afla báta á svæðinu.
Varðskipsmenn vísuðu bátnum til hafnar þar sem lögreglan af höfuðborgarsvæðinu tók á móti skipstjóranum og yfirheyrði hann. Lögreglan mun síðan taka ákvörðun um hvort ákært verður í málinu.
26.01.2009/HBS