Tekinn við meintar ólöglegar veiðar

26. febrúar, 2009

Fimmtudagur, 26. febrúar

Rétt fyrir klukkan 13:00 á fimmtudag stóð Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, línubátinn Háborgu HU 10 að meintum ólöglegum veiðum innan skyndilokunarhólfs á Húnaflóa.

Þeim tilmælum var beint til skipstjóra að klára að draga inn veiðarfæri og halda að því loknu til hafnar þar sem málið verður rannsakað af lögregluyfirvöldum.

26.02.2009/HBS

Fleiri Fréttir