
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Þriðjudagur 5. maí 2009
Kajakklúbburinn hélt um helgina sína árlegu sumarhátíð við Geldinganes og var af því tilefni ákveðið, í samráði við Landhelgisgæsluna, að æfa þyrlubjörgun á sjó.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-EIR sveif um hádegi á laugardag yfir svæðið og staðnæmdist fyrir ofan kajakræðara sem reyndu það að vera undir háværum spöðum þyrlunnar. Sigmaður seig niður úr þyrlunni, tók kajakræðara í björgunarlykkju og voru þeir hífðir upp í þyrluna. Ræðaranum var að því loknu slakað niður til félaga sinna. Gekk æfingin mjög vel, var hún gagnleg báðum aðilum og mikil ánægja hjá Kajakklúbbnum með að fá tækifæri til að æfa og fylgjast með þyrlubjörgun á sjó.