
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Föstudagur 8. maí 2009
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í gær kl. 14:06 kall á rás 16 frá skemmtibát sem strandaður var á Geirsnefi. Beiðni kom um aðstoð við að vera dregnir á flot en fjórir menn voru um borð í bátnum.
Skömmu síðar kom tilkynning um að stjórnandi bátsins hefði strokið frá borði. Hafði þá stjórnstöð samband við Neyðarlínu og Fjarskiptamiðstöð lögregunnar sem sendi lögreglu á staðinn. Voru mennirnir handteknir og fluttir til yfirheyrslu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru þeir grunaðir um ölvun. Engan sakaði við strandið en báturinn skemmdist talsvert við strandið.
080509/HBS