
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 17. Júní 2009
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um kl 16:35 beiðni frá Fjarskiptamiðstöð Lögreglunnar um að þyrla yrði kölluð út til að sækja slasaða konu í Reykjadal skammt norður af Hveragerði. Var þá búið að kalla út Björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í Hveragerði, á Selfossi og Eyrabakka einnig var lögregla á leið á staðinn.
Björgunarsveitir og lögregla komu á slysstaðinn og kannað var ástand hinnar slösuðu, nauðsynlegt var talið að hún yrði flutt með þyrlu á sjúkrahús.
Fór þyrla Landhelgisgæslunnar í loftið kl. 16:02 og lenti rétt við slysstaðinn var hin slasaða þá flutt á hífingabörur þyrlunnar. Lent var við Borgarspítala kl. 17:40, var þyrlan komin að flugskýli Landhelgisgæslunnar kl. 17:53.
170609/HBS