
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Mánudagur 2. nóvember 2009
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 12:52 á sunnudag beiðni frá Neyðarlínunni um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna bílslyss sem var á Holtavörðuheiði. Um var að ræða alvarlega slasaðan mann eftir bílveltu, óskað var eftir að þyrla komi til móts við sjúkrabifreið sem var á leið með hinn slasaða til Reykjavíkur.
Áhöfn þyrlu var kölluð út og fór Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar í loftið kl. 13:16. Lent var hjá sjúkrabifreið á plani norðan við Hvalfjarðargöng sjö mínútum síðar. Var hinn slasaði fluttur yfir í þyrluna sem lenti við Landspítalann í Fossvogi kl. 13:40.