
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 7. apríl 2010
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 18:59 vegna manns með hjartverk um borð í línubát sem var að veiðum um 18 sjómílur V af Garðsskaga. Fór TF-EIR í loftið kl. 19:17, komið var að bátnum kl. 19:33 þar sem stýrimaður og læknir sigu niður í bátinn og undirbjuggu sjúkling fyrir flutning. Var sjúklingur hífður upp í börum og var hífingum lokið kl.19:53. Var þá haldið beint á Reykjavíkurflugvöll þar sem lent var kl. 20:15 þar sem sjúkrabifreið beið og flutti manninn á Landspítalann við Hringbraut.