
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Sunnudagur 27. júní 2010
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í morgun vegna svifdreka sem brotlenti í Spákonufelli sem er fyrir ofan Skagaströnd. Einnig voru björgunarsveitir á Norðvesturlandi kallaðar út. Lenti TF-GNA skammt frá slysstaðnum kl. 11:55 þar sem þyrlulæknir kannaði ástand hins slasaða en hann var með opið beinbrot og skerta meðvitund. Var maðurinn þá undirbúinn fyrir flutning með þyrlunni sem flutti hann til Reykjavíkur. Lent var við Landspítalann kl. 13:10.