
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Landhelgisgæslunni barst kl. 11:57 beiðni um þyrlu vegna alvarlega veiks manns í Vestmannaeyjum en vegna veðurs var ekki var mögulegt fyrir sjúkraflugvél að lenda á flugvellinum þar. Þyrluáhöfn var samstundis kölluð út og fór TF-LIF í loftið kl. 12:29 og lenti á flugvellinum í Vestmannaeyjum kl. 13:07 þar sem sjúkrabíll beið með sjúklinginn. Farið var aftur í loftið kl. 13:19 og lent við skýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 13:49 þar sem sjúkrbíll flutti sjúklinginn á Landspítalann við Hringbraut.