
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Beiðni um útkall þyrlu barst kl. 19:23 í gærkvöldi vegna bílslyss sem varð í Langadal vestan við Húnaver. Með í flugið komu þrír menn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Farið var í loftið kl. 19:54 og haldið í hæð norður og stefnt beint á slysstað, á leiðinni barst beiðni um að hinn slasaði yrði sóttur á Blönduósflugvöll þar sem lent var kl. 20:44. Farið var að nýju í loftið kl. 21:08 og lent við Landspítalann í Fossvogi kl. 22:02. Að sögn þyrluáhafnar var þáttur starfsmanna Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins ómetanlegur og kunna þeir þeim bestu þakkir fyrir samvinnuna.