
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 24. febrúar 2011
Landhelgisgæslunni barst á miðvikudagskvöld kl. 20:32 beiðni um útkall þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna sjómanns með mikla verki um borð í línubát sem var staddur 20 sjómílur suðvestur af Malarrifi á Snæfellsnesi. Þegar þyrla LHG, TF-LÍF kom að bátnum sigu sigmaður og læknir um borð og var sjúklingur undirbúinn fyrir flutning. Lent var á Reykjavíkurflugvelli þar sem sjúkrabifreið beið og flutti manninn á Landspítalann í Fossvogi.