
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Miðvikudagur 23. mars 2011
Landhelgisgæslunni barst kl. 17:33 beiðni frá Neyðarlínunni um að þyrla yrði kölluð út vegna vélsleðaslyss sem varð á Fjarðarheiði við Vestdalsvatn. Upplýst var að björgunarsveitarmenn væru á leið á slysstaðinn með lækni. TF-LÍF fór í loftið kl. 18:05 og var flogið beint á slysstað þar sem lent var um kl. 19:35. Var hinn slasaði fluttur með snjóbíl að þyrlunni sem síðan flaug með hann á Egilstaðaflugvöll þar sem lent var kl. 20:11. Beið þar sjúkraflugvél Mýflugs sem flutti hinn slasaða á sjúkrahús.