
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...
Fimmtudagur 7. apríl 2011
Landhelgisgæslunni barst kl.16:36 beiðni um þyrlu Landhelgisgæslunnar frá 112 vegna alvarlegs bílslyss rétt vestan við Kirkjubæjarklaustur. Fór TF-GNA í loftið kl. 17:05 og flaug með ströndinni þar sem mikill vindur og sandfok var á söndunum fyrir austan.
Þyrlan lenti við lögreglustöðina á Kirkjubæjarklaustri kl. 17:55 þar sem hinn slasaði var fluttur úr sjúkrabíl yfir í þyrlu sem hélt strax at stað til Reykjavíkur. Lenti þyrlan við Landspítalann í Fossvogi kl. 19:30.